Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240 : Til hamingju með afmælið
Go to content Go to navigation Go to search

Til hamingju með afmælið ·

Saturday
16
August
2008

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Kristín,
hún á afmæli í dag.

Hún er átta ára í dag,
hún er átta ára í dag,
hún er átta ára hún Kristín,
hún er átta ára í dag.

Hipp hipp húrra húrra
húrra húrra húrra
húrra húrra húrra

Við óskum henni innilega til hamingju með afmælið, ætlum að vera með smá kaffi í dag kl 1300 því svo verður hún með stelpupartý kl 1500 og auðvitað verður sjónvarpað handboltaleiknum :)

Ég vill líka óska Rakel til hamingju með litla drenginn sem kemur í heiminn þann 14. ágúst.

Annars er allt fínt að frétta búið að vera mikið að gera, ég er búin með fyrstu vikuna á Reykjalundi, vá hvað maður var búin á því og mikið að meðtaka. Maður þarf sko alla sína orku bara í að klára daginn, annars legst þetta voða vel í mig…

Stelpurnar unna sér voða vel á leikskólanum, ég var spurð hvort þær bara yfir höfuð grétu ekkert. Jú jú ef það er eitthvað sem er að, þá gera þær það en samt voða lítið.

Kristín er búin að vera á hótel Ömmu alla vikuna, hún er búin að vera dugleg að draga ömmu út um allt. Þær fóru í húsdýragarðinn, sund, fóru í heimsókn til Hönnu Stínu. Kristinu fannst samt mest standa upp úr að fá að fara með ömmu sinni í sjúkraþjálfun….

Friðþjófur hefur það líka gott, við fórum til mömmu hans á þriðjudaginn þar voru litlu kraftaverkin, þær stóran og litlan eins og þær eru kallaðar ;) þó svo það sé ekki mikil munur á þeim í dag en jii hvað þær voru sætar og litlar miða við mín trölla börn haha

jæja ætla fara vekja afmælis barnið og knússa hana

Með kveðju Inga, prinsessurnar og prinsinn

Skráð af Ingu Dögg -

Það hefur verið lokað fyrir skilaboð