... Það hefur áður komið fram á þessari síðu að ég sé mikil áhugamaður á sviði klósetlestrar. Fyrir þá sem ekki þekkja hugtakið klósetlestur verður það hér með útskýrt. Klósetlestur gengur í allri sinni dýrð út á það að lesa meðan setið er. Þergar sagt er setið, er að sjálfsögðu verið að meina meðan setið er á hvíta postulínshlutnum sem fyrirfinnst á lang flestum salernisstöðum á landi þessu, (þessi með vatninu ofaní og loki ofaná). Þegar lesið er er oftast haldið á þeim hlut sem brúkaður er til lestrar. Einnig er hægt að nota tilfallandi hluti sem lestrarborð, t.d. óhreynatauskörfur eða það sem hendi er næst. Möguleikarnir eru óendanlegir.
... Til lestrar má ýmislegt brúka, bækur, blöð, bæklinga, jafnvel sjampóbrúsa í hallæri. Sökum þess að klósetferðir eru krefjandi er það samt nauðsinlegt að hafa lestrareiningunna handhæga, ekki of stóra, ekki of litla.
... Á búsetu árum mínum í danmörku var Bilka bæklingurinn vinnsæll til klósetlestrar. Enda fjölbreyttur mjög, í bæklingnum var flóran öll, allt frá kvenfólki á undirfötum til spennandi fartölvutilboða, einnig var líka von á því að lenda á góðu kjúklingatilboði eða útsölu á niðursuðuvörum. Bæklingurinn er útgefin í handhægu broti, eða í stærð A4.
... Hér á íslandi er það Hagkaupsbæklingurinn sem kemmst næst Bilka, þó hann sé samt mikið slakari. En hann er bara alltof stór til frjálshendislestrar. Hér með óska ég eftir því að hagkaupsmenn sendi mér héðan frá bæklinginn í A4 broti.
Skráð af Friðþjófi Helga -

Skoðannir
já er erfit að einbeita sér á þremur hlutum í einu halda lesa og kreista:)
— Frúin á heimillinu Aug 3, 12:34 #ég verð bara að kaupa Séð og heyrt handa þér handhægt mikið úrval af rusli og stelpum ;)
Til hamingju með stóru skvís kæru hjú !!! sjáumst á eftir
— Halldóra og allir Aug 16, 15:35 #Kvörtun til Ingu:
— Strandberg Aug 30, 20:22 #HVERNIG VÆRI AÐ FARA AÐ BLOGGA!!!!!
í sannleika sagt þá veit ég ekki slóðina úr þessari tölvu því í minni þá var allt tilbúið ;) ég elska þig líka
— Frúin á heimillinu Aug 31, 12:57 #