Núna þegar ég er búinn að vera búsettur á landi ís og elda í rúmar þrjár vikur er ágætt að líta um öxl og rifja upp nokkra misbjarta punkta úr tilveru lítils íslendings sem er nýbyrjaður að ganga um heimahaga sína á nýjan leik.
Umgengni.
Við fórum út að hjóla í morgun, þrátt fyrir brekkuvæl ýmsra ónefndra gekk ferðin bara ágætlega. Á leið okkar stoppuðum við á leiksvæði einu, er staðsett er við sjávarsíðuna í hverfi foldarinnar. Það var heppnin ein að pláss var fyrir Auði litlu á leiktækjunum, svo mikið var krotið og málningar ógeðið sem var búið að láta tækin ganga í gegnu. Bera íslendingar ekki neina virðingu fyrir landi sínu og fólkinu sem býr þar með þeim? Svæðið hefði sæmt sér vel í virðulegu lágmenningarhverfi í bandaríkjum norður ameríku.
Verðlag.
Ég hef í nokkur skipti lent í því að þurfa að versla eitthvað inn hér á landi, hef jafnoft næstum þurft að lýsa sjálfan mig gjaldþrota. Þakka fyrir að þurfa ekki að borga fyrir að ganga inní búðirnar. Hef ekki ennþá þorað inní búð sem selur áfeng drykkjarföng, hef þó oft spáð að gera það, bara til þess að fá sjokkið í einni langri gusu. Betra að komast yfir þetta í eini langri, vill ekki þurfa að ganga í gegnum þetta allveg framundir áramót. Spáði síðast í að ganga inní eina slíka í dag, er ég var sendur eftir snúðum og kókómjólk handa þurfandi heimilisfólki. En þorði ekki. Stefnan var sett útfyrir borgina seinnipartin, vildi ekki leggja af stað í slíka för, í þunglyndi.
Hraði.
Er virkinlega þröf á öllu þessum hraða eins og í þjóðfélaginu hér. Við lifum bara einu sinni, þurfum við virkinlega að flýta okkur að gera það?
Framhald framundir haust…
Skráð af Friðþjófi Helga -

Skoðannir
æ æ aumingja ég, tek það fram að það var engin önnur en ég sem kvartaði og kveinaði í brekunum enda ekkert smá brekka ;)
— Frúin á heimillinu Jul 30, 16:05 #Mikið er ég nú sammála þessum þönkum þínum um kappakstur lífsins!
— Día og Englendingarnir Aug 14, 16:47 #