... Einu sinni var ég duglegur að blogga, gaf mér á oft leyfi til þess að nöldra og ýkja og skrifa nokkuð sanna hluti.
... Nafn…
Hversu mikill forstofumotta er maður þegar maður leyfir konuni að ráða öllu og stjónast með allt. Það er allt í lagi að leifa þeim að ráða til hálfs eða svo, segja já á réttum tímum og svona, þó tveggja stafa orðið sé jafnan sagt til að færa gleði. Enn það eru til menn sem láta þær komast upp með allt.
Til eru maður sem fer heim á miðjum degi til að ryksuga, því konan er að fá gesti.
Til er maður sem fór í 4 ára nám til þess að þóknast konuni, því hún gat ekki hugsað sér að vera með iðnaðarmanni til lengdar.
Til er maður sem var að semja við konuna sína um kynlíf. Samningurinn hljómaði uppá tvö skipti á viku, eitt á miðvikudögum og annað á laugardögum. Þetta kallaðist ekki ást, unaður eða annað slíkt, heldur sambandslegar skildur.
Þessi maður átti ættarnafn í höfuði á föðurfjölskyldu sinni (sem er algengt á þeim slóðum sem hann býr á) en í dag heitir hann í höfuðið á tengdarforeldrum sínum. Hann fórnaði því síðasta sem hann átti eftir, nafninu sínu.
Skráð af Friðþjófi Helga -

Skoðannir
Já ástin mín sumir elska konur sína meira en aðrir hahaha
— Frúin á heimillinu Oct 15, 12:37 #