Kristín lasin

Auður í móðurhlutverkinu

María grallari

...annars er fínt að frétta
Auður var bleyjulaus í gær og fór 10x á klósettið og pissaði missti niður 3x og gerði svo stóra hluti í klósettið 1x var mjög dugleg sagði alveg sjálf til ég ýtti ekkert á hana…
Kristín var hjá pabba sínum um helgina og kom hress til baka…
María er öll komin af stað skríður hér um allt á flegi ferð er komin upp á stóla og klifraði upp í sófa með hjálp stóls sem hún setti fyrir framan sófan:)...
ég keypti mér kort í Hreyfingu um helgina svo núna er bara harkan 6, stefni á 500gr á viku svo þá verð ég komin undir 80kg fyrir jól eða það er markmiðið mitt svo set ég annað eftir jól;)...
Mér finnst nú hann Friðþjófur ætti bara sjálfur að segja frá því hvað hann er að huxa og gera svo ég er hætt að tjá mig um hvað hann er að gera, svo ég skora á hann að blogga smá þó svo það væri ekki nema 10 orð:)...
Með kveðju Inga pinga
Skráð af Ingu Dögg -
