Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240 : blendnar tilfinningar
Go to content Go to navigation Go to search
Auður á klósettinu

blendnar tilfinningar ·

Friday
26
September
2008

...já það mánú segja það búin að vera í þessu líka örugga umhvefi og á lei út í veröldina, smá smeik en hey ég get það alveg ;)...

... ég tók próf í byrjun til að mæla þunglyndið og mældist ég yfir 50 stig veit ekki hvort það er mikið eða lítið en svo tók ég það aftur eftir 4 vikur og var þá 36, ég tók sama próf aftur á þriðjudaginn og hey vitir menn þá fékk ég töluna 17 sem er bara afburða góður árangur á 7 vikum ;) ekki satt…

...allir að hressast á heimilinu Kristín skellti sér til keflavíkur í gær og ætlar að fá að jafna sig í faðmi pabba sins:) ekki er það nú slæmt, Auður er hress að vanda, María er komin með smá roða í eyrun svo ég fékk við því þar sem hún er svo mikið inn á leikskóla að hún nær ekki að vinna sjálf á þessu…

...Friðþjófur já hann Friðþjófur hann stendur sig alltaf eins og hetja, dugnaðarforkur heldur utan um okkur allar, og elskum við hann fyrir það og auðvitað elskum við hann bara fyrir að vera hann sjálfur, hvað værum við án hans og hehe hann án okkar ekki satt, við Friðþjófur erum á leið til Bilbai hvernig sem þetta er nú skrifað jú jú karlinn ætlar að bjóða frúnni með sér þanngað í helgar ferð, ef ég man rétt förum við út þann 16. okt ég jiii man það bara ekki eða þarna um kring á fimmtudeginum og komum heim á mánudegi þetta er árshátíð í vinnunni hans og eru stelpurnar búnar að stúdera hvar H&M eru þarna svo ég þarf ekki að huxa mikið í þessari ferð nema vera til, Þórunn Frænka og Svana Vinkona (þær eru sistur) ætla vera hér heima með stelpurnar okkar meðan við förum í firsta sinn eitthvað ein(hissa) já svona er þetta bara…

...man ekki hvort ég hef skrifað um þetta en þá segi ég það bara aftur við Kristín ætlum að skella okkur á mæðgna helgi í Vindárshlíð þann 3.okt-5.okt erum við voða spenntar fyrir því enda eki mikið fengið tíma saman…

...jæja best að fara koma okkur af stað kl er núna 0709 á föstudagsmorgni og við erum allar tilbúnar að fara út, hér er sko vaknað með pabbanum kl 0600 ég fer bráðum að taka fyrir það aðhann vakni svona snemma svo ég fái að sofa hann getur bara farið eftir vinnu í ræktina ekki satt tíhí, nei nei þetta er allt í lagi meðan ég vakna humm…

eigið góða helgi öllsömul knúss og kossar til ykkar frá mér og mínum

ykkar Inga Pinga

Skráð af Ingu Dögg -

Skoðannir

  1. hæhæ darling…gaman að heyra að allt gangi vel hjá ykkur…knús og kossar mamma

    mamma    Sep 26, 21:23    #
  2. takk fyrir mamma mín,
    þín er saknað hér hinum megin við hafið
    En maður má ekki vera eigingjarn, vilja hafa þig útaf fyrir sig það eru fleirri en við sem þurfum á nærveru þinni að halda
    Hafið það gott þarna hinum megin við hafið knúss knúss til ykkar líka

    Frúin á heimillinu    Sep 27, 10:53    #

Það hefur verið lokað fyrir skilaboð