Var að lesa það á vísi að bensínverð sé ódýrara á Íslandi en hér í danmörku. Ekki er ég samála þessari grein. Þeir hafa ekki haft meira fyrir rannsóknarmennskunni enn að kíkja inná heimasíðu hjá eitthverju olíufélagi hér í danmörku og litið á listaverð olíufélagsins.
Enn sanleikurinn er sá að stór munur getur verið á listaverði og útseldu verði, vegna þess að hér í danmörki ríkir mikil samkeppni milli olíufélaga. Samkeppni sem ekki er til á íslandi.
T.d. er listaverðið hjá Metax bensínstöðunum uppgefið á heimasíðu félagsins 9,5 ddk fyrir 95 oktana bensín, enn er samt til sölu á vissum tíma dagsins, allveg niður undir 8,2 til 8,5 ddk. Sem gerir 96 til 100 íslenskar krónur. Enn á heimasíðu atlansolíu er þeirra verð 112 krónur íslenskar, og fer kannski niður í 110 með eitthverjum afslætti. Þannig að keypt bensín getur allveg verið rúmlega 10% ódýrara hér í danmörku enn á íslandi.
Betra er að vinna rannsóknarvinnuna aðeins betur, ekki bara ljúga af lesendum .
Skráð af Friðþjófi Helga -

Skoðannir
Hehe, sumir eru greinilega bara áskrifendur af laununum sínum.
— Hrabba Mar 13, 23:02 #