Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240 : Nýr lífstill
Go to content Go to navigation Go to search
Krstín og Mamma sofandi

Nýr lífstill ·

Wednesday
21
May
2008

Jæja þakka fyrir góðar viðtökur og allan stuninginn sem þið gáfuð mér með því að vita að ég er ekki ein á svo marga að ;)

En að fyrirsögninni ég hef ákveðið að prófa nýjan lífstíl, það sem ég hef bætt mikið á mig í þessu þunglyndi og ekki fækkuðu þeim þegar ég byrjaði á nýjalyfinu en núna stend í í 90,9kg já váááá 10kg síðan þann 28.mars og 80.9 var líka of mikið en núna ætla ég að snúa við blaðinu, byrja strax í dag,

ég mældi mig svona til gamans

Brjóst 112cm
Magi 114cm
Mjaðmir 115cm
Læri 64cm
hæð 157cm
Þyngd 90,9kg
BMI 36,9 (hættuleg offita )
fitu% er 35,7

ætla ég að setja inn tölur á viku til hálfsmánaðalega þá yrði það á föstudögum, ég fer 3x í viku í leikfimi og ætla reyna að labba hina daganna í minnst 30mín, og elska líkama min og auðvita ykkur líka ;)

Líðan…

Ég stend mikið í stað núna er ennþá að brjóta mig niður fyrir hitt og þetta eins og á mánudaginn var Body balans og þetta er svona samblanda af joga, pilates og slökun ég var að gera hundin og allt það sem þessar stellingar heita og ég fékk innilokunarkend bara við það að reyna tegja mig í tærnar þar sem brjóstin fóru alveg upp í andlitið á mér og bumban umm að höku þar sem brjóstin voru þarna rétt fyrir ofan það láku nokkur tár ég herti samt upp hugan og þegar tímanum lauk þá var ég staðráðin í að hringja í læknin og fá að hætta á þessum lyfjum en hey vil frekar vera feit og líða vel en horuð og eiga ömurlegt líf svo Inga herti upp hugan bara svona smá til að þið sem nennið að fylgjast með vælinu í mér eða móðursýkinni eins og einhver sagði við mig arg, langaði mest til að labba bara í burtu og aldrei koma aftur þegar maður fær svona comment en ákvað að taka þetta ekki inn á mig dugleg ég…

annars hafa allir það voða fínt eða svo ;) búin að vera með ælupest hér í húsi arg og þvottavélin bilaði, en búin að fá nýja tíhí setti í heilar 6vélar í gær enda mikið safnast upp á heilli viku þó svo ég hafi farið með til múttu og T. múttu 4 og 3 skil bara ekki allan þennan þvott en vil ég nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir….

Jæja knúss til ykkar góðu vinir og ættingjar takk fyrir góðan stuðning um von um áframhaldandi stuðning

Með kveðju Inga Pinga púttu …. eins og mamma mín vill orða þetta ;)

Skráð af Ingu Dögg -

Skoðannir

  1. Þú ert bara að standa þig vel, að drífa þit svona út, eitt skipti er hvert eitt, ekkert stríð vinnst í einni lotu og allar ferðir byrja á einu og einu skrefi. :-)

    Anna Soffía    May 22, 21:29    #
  2. Veistu, andlega líðanin skiptir miklu meira máli en líkamlegt útlit. Þetta helst í hendur, ef fólk líður illa þyngist það oft, en svo þegar skýin taka að hverfa þá léttist fólk oft.
    Annars er ég svo ánægð að fá að heyra eitthvað frá ykkur.
    Gangi þér vel!

    Freyjan    May 23, 11:40    #
  3. Gott hjá þér að vera svona duglega:)
    Ætla klárlega að fylgjast með!!!

    Eva Dögg    May 24, 13:11    #
  4. Það eru alltaf baráttukveðjur héðan og heilshugar hugsað til ykkar. Kossar og knús x

    Día    May 26, 15:44    #
  5. Jæja mýslan mín…..
    ég gef okkur svona tvö ár þá förum við í sólarferðina okkar og sprönglumst um á bikiní !!!
    Mér finnst þú æðislegt og flott, þeir sem þekkja þig sjá þig allt öðruvísi en þú sérð þig krúslan mín.
    Ég er hérna hinum megin við garðinn ef það er eitthvað þú átt nú vel inni hjá mér elskan mín.
    Það eru forréttindi að eiga þig að. Elska þig endalaust ;)

    Halldóra    May 26, 16:07    #
  6. Vá langaði bara að segja að þú ert æði. Það er svo gott að vinna i sinum málum manni fer að líða svo vel:’eg er buin að ganga i gegnum þetta lika og trúðu mer þetta er svo gott þegar allt gengur i haginn.Gangi þér vel sæta
    Kveða Guðlaug Helga Sigurðardótti

    Gulla    May 26, 20:01    #
  7. Kvitt kvitt og knús… ;-)

    Heiða Rafnsdóttir    May 27, 01:19    #
  8. Ég veit þú getur þetta skvísa og við stöndum saman í þessu og ég er sammála Halldóru ég er með í þessari sólarferð eftir tvö ár í bíkinium ;)
    Elska þig litla pæja og látum ekki líða of langt á milli næsta vinkonudag. (heima hjá mér í pottinum og spjall )
    Kv. Skotta

    Skotta    May 27, 13:15    #
  9. Hei hei frænka. Flott hjá þér með ákvörðun um nýjan lífstíl. Og ég skil vel hugsanir þínar varðandi lyf, er sjálf á kortizon lyfi núna og hef fitnað um 12 kíló síðan í mars, mikið er vatn en ég lít út eins og einhver hafi blásið upp á mér andlitið með pumpu. hehe… En ég reyni að horfa jákvætt á þetta eins og þú, betra að líða betur með lyfjunum en án þeirra. Núna á ég bara 1 mánuð eftir á þessu lyfi og þá er bara harkan sjálf að losna við aukakílóin, svo hefur nýji kallinn minn lofað að hjálpa mér, hann er einkaþjálfari og veit hvað ég get gert. Sendi þér baráttukveðjur Inga mín. Þetta getum við :-) Kossar og knús

    Guðrún    May 27, 13:28    #

Það hefur verið lokað fyrir skilaboð