Sökum þess að öll fjölskyldan mín sefur á við leikskólakrakka (þó enginn þeirra sé á leikskóla) hef ég nógan tíma til þess að hugsa, hangsa, spá og spekulera flest kvöld. Kvöldið í kvöld er eingin breyting frá venjunni, sit einn fyrir framan sjónvarpið, tölvunna, nota kaffivélina, ísskápin (þó aðeins innihalds skápsins, ekki hann sjálfan). Var að hugsa um að lesa sunnudagsmoggan, en áttaði mig svo á því að það er laugardagur. Langar ekki að vita fréttir morgundagsins, hef ávallt lifað einn dag í einu og vill því ekki blanda morgundeginum inní daginn í dag. Það eitt gæti minnkað gildi morgundagsins, og eru sunnudagar venjulega heldur þurrir og borgar sig ekki að þynna þá mikið.
Sökum þess að ég er hættur í skóla (þó ekki snarhættur sko, ég kláraði hann bara) hef ég áttað mig á því að það var margt í lífinu sem ég upplifði ekki meðan ég var í skóla. Ég hef til dæmis áttað mig á því að þegar maður er ekki í skóla á maður af og til tíma sem maður getur ekki notað í neitt nema að setjast niður. Hef líka lært aðmannfólkið (það sem ekki er í skóla) kallar það að slaka á. Þegar maður er í vinnu kemur maður líka stundum heim um fimm leitið, ekki alltaf þó. Einu sinni fyrir ekki svo löngu þegar ég var í skóla kom ég líka heim um fimm leitið. En þá kallaðist það að koma heim snemma heim og var oftast gert á sunnudögum og af og til á laugardögum.
Veit ekki hvort það tengist þessu eitthvað að ég hafi verið að skoða endurmenntunarnámskeið hjá háskólanum og víðar í kvöld.
En ekki í vetur samt.

Skoðannir
það var einhver sem ég þekki í gær að segja hvað það væri gott að vera ekki í skóla, getað slappað af með fj. og dúllað sér með börnunum humm hver var það núna farinn að skoða endurmenntun bara muna ég er nærst :) loforð er loforð
— Frúin á heimillinu Sep 23, 13:48 #Að skoða er ekki það sama og framkvæma inga mín
— FHGS Sep 23, 15:16 #þetta er orðið sorglegt hjá okkur hjónum það commentar engin annar en við sjálf humm
— Frúin á heimillinu Sep 23, 16:06 #Ætli það sé ekki tími til kominn að maður kvitti fyrir lesninguna! Hef ekki enn haft tíma til að senda mail á frúnna, var það annars ekki Inga@gleymin.is? ehem
— Freyja Sep 27, 11:08 #Knús og kossar
nei Freyja það var ingadogg @gleymin.is
— Frúin á heimillinu Sep 27, 11:10 #